Skrunaðu

Sjáðu allannámsferilinná einum stað

Fræðslupassinn sýnir hvaða námskeiðum þú hefur lokið hjá Rafmennt. Hann býr í símanum og uppfærist sjálfkrafa.

FræðslupassinnUppfært25.09.2026
Nafn
Rafmann Straumsson
Kennitala
010101-0101
Mynd af Rafmanni
X7K2M-9PQRS-TUVWX
Fræðslupassinn
HandhafiRafmann Straumsson
Uppfært25.09.2026
Námskeið
  1. Skyndihjálp
  2. Loxone stýringar
  3. Brunaviðvörunarkerfi
  4. Hleðslustöðvar fyrir rafbíla
  5. Smáspennukerfi og netkerfi
  6. Rafmagnsöryggi – örugg vinnubrögð

Útgefið af Rafmennt · rafmennt.is

Öll námskeið
á einum stað

Snúðu passanum við og þar eru öll námskeiðin sem þú hefur lokið hjá Rafmennt, nýjasta efst.

Svona virkar hann

  1. Fyrsta námskeiðinu lokið

    Rafmann lýkur námskeiði í rafmagnsöryggi hjá Rafmennt og vistar Fræðslupassann í veskið á símanum.

  2. Alltaf nýjasta staðan

    Í hvert sinn sem námskeiði lýkur bætist það á passann og dagsetningin „Uppfært“ færist fram. Rafmann fær tilkynningu og þarf ekkert að gera.

  3. Á verkstað

    Rafmann opnar passann og verkstjórinn skannar QR-kóðann á staðfestingarsíðunni.

  4. Staðfest af Rafmennt

    Upplýsingarnar koma beint frá Rafmennt. Verkstjórinn sér öll námskeiðin og hvenær þeim lauk.

Skanna.Staðfesta.

Atvinnurekendur, verkstjórar og eftirlitsaðilar skanna QR-kóðann á Fræðslupassanum og sjá strax hvaða námskeiðum viðkomandi hefur lokið og hvenær. Upplýsingarnar koma beint frá Rafmennt.

Staðfesta passa

Sæktu passann

Veldu veskið í símanum þínum. Passinn fylgir þér og uppfærist þegar þú lýkur næsta námskeiði.

Algengar spurningar

Þarf ég að gera eitthvað eftir nýtt námskeið?

Nei. Passinn uppfærist sjálfur og nýja námskeiðið birtist á bakhliðinni.

Hvar sé ég námskeiðin mín?

Opnaðu passann í veskinu og snúðu honum við. Þar eru öll námskeiðin, nýjasta efst.

Hvað sést þegar kóðinn er skannaður?

Nafn, mynd og þau námskeið sem þú hefur lokið hjá Rafmennt, ásamt dagsetningum.

Ég skipti um síma. Hvað þá?

Þú sækir passann aftur og hann birtist með öllum námskeiðunum þínum.